Uppsetning forrita
Hægt er að flytja uppsetningarskrár í tækið úr samhæfðri tölvu, hlaða þeim niður
þegar vafrað er eða fá þær sendar sem margmiðlunarskilaboð, sem
tölvupóstsviðhengi eða nota aðrar tengiaðferðir, svo sem Bluetooth.
Hægt er að nota Nokia Application Installer í Nokia Ovi Suite til að setja upp forrit í
tækinu.
Táknin í Forritastjórnun sýna eftirfarandi:
SIS- eða SISX-forrit
Java-forrit
smáforrit
forrit sett upp í gagnageymslunni
Mikilvægt: Aðeins skal setja upp og nota forrit og annan hugbúnað frá
traustum aðilum, t.d. forrit með Symbian Signed eða forrit sem hafa verið prófuð
með Java Verified™.
Önnur forrit 151
Fyrir uppsetningu geturðu gert eftirfarandi:
•
Til að skoða gerð forritsins, útgáfunúmer og seljanda eða framleiðanda
forritsins skaltu velja
Valkostir
>
Skoða upplýsingar
.
Til að skoða upplýsingar um öryggisvottorð forritsins skaltu velja
Upplýsingar:
>
Vottorð:
>
Skoða upplýsingar
. Hægt er að stjórna notkun
stafrænna vottorða í Vottorðastjórnun.
•
Ef sett er upp skrá með uppfærslu eða lagfæringu á forriti er aðeins hægt að
endurheimta upphaflega forritið ef fyrir hendi er upphaflega
uppsetningarskráin eða fullkomið afrit af hugbúnaðarpakkanum sem var
fjarlægður. Til að endurheimta upphaflega forritið skaltu fyrst fjarlægja forritið
og setja það svo upp aftur með því að nota upphaflegu uppsetningarskrána eða
öryggisafritið.
Nauðsynlegt er að hafa JAR-skrá til að setja upp Java-forrit. Ef skrána vantar
getur tækið beðið þig um að hlaða henni niður. Ef enginn aðgangsstaður er
tilgreindur fyrir forritið biður tækið þig um að velja aðgangsstað.
Forritið er sett upp á eftirfarandi hátt:
1 Til að staðsetja uppsetningarskrá velurðu
Valmynd
>
Stillingar
og
Forritastjórnun
. Að öðrum kosti skaltu leita að uppsetningarskrám með
Skráarstjórnun eða velja
Skilaboð
>
Innhólf
og opna skilaboð sem innihalda
uppsetningarskrá.
2 Í Forritastjórnun velurðu
Valkostir
>
Setja upp
. Í öðrum forritum velurðu
uppsetningarskrána til að hefja uppsetninguna.
Meðan á uppsetningu stendur birtir tækið upplýsingar um stöðu
uppsetningarinnar. Ef þú setur upp forrit án rafrænnar undirskriftar eða
vottorðs birtir tækið viðvörun. Þú skalt aðeins halda áfram að setja upp forritið
ef þú ert viss um uppruna þess og innihald.
152 Önnur forrit
Til að ræsa uppsett forrit finnurðu það í valmyndinni og velur það. Ef forritið er ekki
með sjálfgefna möppu skilgreinda er það sett upp í möppunni Uppsett forrit á
aðalvalmyndinni.
Til að sjá hvaða hugbúnaðarpakkar hafa verið settir upp eða fjarlægðir og hvenær
það var gert skaltu velja
Valkostir
>
Skoða notkunarskrá
.
Mikilvægt: Tækið styður aðeins eitt vírusvarnarforrit í einu. Notkun fleiri en
eins vírusvarnarforrits getur haft áhrif á afkastagetu og virkni tækisins, eða valdið
því að það virki ekki.
Uppsetningarskrár (.sis eða .sisx) eru áfram í minni tækisins eftir að forrit þeirra
hafa verið sett upp í gagnageymslu. Skrárnar geta tekið mikið minni og valdið því
að ekki sé hægt að vista aðrar skrár. Til að losa um minni skaltu nota Nokia Ovi Suite
til að taka öryggisafrit af uppsetningarskrám og vista í samhæfri tölvu. Að því loknu
skaltu nota Skráastjórnun til að eyða uppsetningarskránum úr minni tækisins.
Ef .sis-skráin er viðhengi með skilaboðum skaltu eyða skilaboðunum úr innhólfinu.