Nokia X6 00 - Höfundarréttur og önnur ákvæði

background image

Höfundarréttur og önnur ákvæði

YFIRLÝSING UM SAMKVÆMNI

Hér með lýsir NOKIA CORPORATION því yfir að varan RM-559 er í samræmi við grunnkröfur og aðrar kröfur sem gerðar eru

í tilskipun 1999/5/EB. Eintak af yfirlýsingu um samkvæmni er að finna á slóðinni http://www.nokia.com/phones/

declaration_of_conformity/.

© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

Nokia, Nokia Connecting People, Nokia Original Accessories lógó, og Nokia Original Enhancements lógó eru vörumerki

eða skrásett vörumerki Nokia Corporation. Nokia tune er tónmerki Nokia Corporation. Önnur vöruheiti eða heiti fyrirtækja

sem nefnd eru hér geta verið vörumerki eða vöruheiti viðkomandi eigenda

Hvers konar afritun, yfirfærsla, dreifing eða varðveisla á hluta skjals þessa eða skjalinu öllu er óheimil nema að fyrirfram

fengnu skriflegu samþykki Nokia. Nokia framfylgir stefnu sem felur í sér stöðuga þróun. Nokia áskilur sér rétt til að gera

breytingar og úrbætur á hvers konar vöru sem getið er í þessu skjali án undangenginnar tilkynningar.

Java and all Java-based marks are trademarks or registered trademarks of Sun Microsystems, Inc.

Þessi vara er háð leyfinu MPEG-4 Visual Patent Portfolio License (i) til einkanotkunar og án viðskiptatilgangs í tengslum

við upplýsingar sem hafa verið kótaðar samkvæmt staðlinum MPEG-4 Visual Standard af neytanda í persónulegum tilgangi

og án viðskiptatilgangs og (ii) til notkunar í tengslum við MPEG-4 hreyfimynd sem fengin er hjá hreyfimyndaveitu með

leyfi. Ekkert leyfi er veitt eða undirskilið til neinnar annarrar notkunar. Viðbótarupplýsingar, sem varða til dæmis notkun

í auglýsingum, innan fyrirtækis og í viðskiptum, má fá hjá MPEG LA, LLC. Sjá http://www.mpegla.com.

AÐ ÞVÍ MARKI SEM VIÐEIGANDI LÖG LEYFA SKAL NOKIA EÐA EINHVERJIR AF LEYFISVEITENDUM ÞESS UNDIR ENGUM

KRINGUMSTÆÐUM BERA SKAÐABÓTAÁBYRGÐ VEGNA TAPS Á GÖGNUM, TEKJUTJÓNI EÐA Á NEINU SÉRSTÖKU, TILVILJANAKENNDU,

AFLEIDDU EÐA ÓBEINU TJÓNI HVERNIG SEM ÞAÐ VILL TIL.

INNTAK ÞESSA SKJALS ER AFHENT „EINS OG ÞAÐ KEMUR FYRIR“. UMFRAM ÞAÐ, ER LÖG ÁSKILJA, ER ENGIN ÁBYRGÐ VEITT, HVORKI

BERUM ORÐUM NÉ UNDIRSKILIN, Á NÁKVÆMNI, ÁREIÐANLEIKA EÐA INNTAKI ÞESSA SKJALS. Á ÞAÐ MEÐAL ANNARS, EN EKKI

176 Höfundarréttur og önnur ákvæði

background image

EINGÖNGU, VIÐ UM SÖLUHÆFNI EÐA ÁBYRGÐ Á AÐ VARAN HENTI TILTEKINNI NOTKUN. NOKIA ÁSKILUR SÉR RÉTT TIL AÐ

ENDURSKOÐA SKJALIÐ EÐA DRAGA ÞAÐ TIL BAKA HVENÆR SEM ER ÁN UNDANGENGINNAR TILKYNNINGAR.

Bakhönnun (e. reverse engineering) hugbúnaðar í tækinu er bönnuð eins og lög segja til um. Að því marki er þessi

notendahandbók inniheldur einhverjar takmarkanir á fyrirsvari, ábyrgðum og skaðabótaskyldu Nokia, auk takmarkana

á fjárhæð skaðabóta, skulu þær takmarkanir einnig ná til sérhvers fyrirsvars, ábyrgða og skaðabótaskyldu leyfisveitanda

Nokia, auk takmarkana á fjárhæð skaðabóta.

Þau forrit frá þriðju aðilum sem finna má í tækinu kunna að hafa verið búin til og vera í eigu aðila eða fyrirtækja sem ekki

tengjast Nokia. Nokia á ekki höfundarréttindi eða hugverkaréttindi að þessum forritum þriðju aðila. Nokia tekur því hvorki

ábyrgð á aðstoð við notendur, virkni þessara forrita eða þeim upplýsingum sem fylgja forritunum eða efninu. Nokia veitir

enga ábyrgð á þessum forritum þriðju aðila. MEÐ NOTKUN SINNI VIÐURKENNIR NOTANDINN AÐ FORRITIN ERU AFHENT EINS

OG ÞAU KOMA FYRIR ÁN ÞESS AÐ NOKKUR ÁBYRGÐ SÉ VEITT, BERUM ORÐUM EÐA ÓBEINT, AÐ ÞVÍ MARKI SEM HEIMILT ER Í

VIÐKOMANDI LÖGUM. NOTANDINN VIÐURKENNIR JAFNFRAMT AÐ HVORKI NOKIA NÉ TENGD FÉLÖG VEITA NOKKURS KONAR

FYRIRSVAR EÐA ÁBYRGÐ, BERUM ORÐUM EÐA ÓBEINT, ÞAR Á MEÐAL EN EKKI EINGÖNGU ÁBYRGÐ Á EIGNARRÉTTI, SÖLUHÆFNI

EÐA HÆFNI TIL TILTEKINNAR NOTKUNAR, EÐA ÞVÍ AÐ FORRITIN BRJÓTI EKKI GEGN EINKARÉTTI, HÖFUNDARRÉTTI,

VÖRUMERKJARÉTTI EÐA ÖÐRUM RÉTTINDUM ÞRIÐJA AÐILA.

Framboð á tilteknum vörum, forritum og þjónustu fyrir þessar vörur getur verið breytilegt eftir svæðum. Kannaðu það,

ásamt tungumálavalkostum, hjá Nokia-söluaðila þínum. Tæki þetta kann að innihalda vörur, tækni eða hugbúnað sem

lýtur útflutningslögum og reglugerðum í Bandaríkjunum og öðrum löndum. Breytingar á flutningsleiðum sem ekki

samræmast lögum eru óheimilar.

TILKYNNING FRÁ FCC/INDUSTRY CANADA
Tækið þitt getur valdið truflunum á sjónvarpi eða útvarpi (til dæmis þegar sími er notaður nálægt viðtökutæki). FCC eða

Industry Canada geta krafist þess að þú hættir að nota símann ef ekki er hægt að koma í veg fyrir slíkar truflanir. Ef þú

þarft aðstoð skaltu hafa samband við þjónustuaðila í nágrenni við þig. Þetta tæki er í samræmi við 15. hluta af reglum

FCC. Notkun þess er háð eftirfarandi tveimur skilyrðum: (1) Tækið má ekki valda skaðlegum truflunum; og (2) tækið verður

að taka við öllum truflunum sem það verður fyrir, þ.m.t. truflunum sem geta valdið óæskilegri virkni þess. Sérhverjar

breytingar sem Nokia hefur ekki samþykkt berum orðum geta ógilt heimild notandans til notkunar búnaðarins.

Gerð: X6-00

/Útgáfa 5.4 IS

Höfundarréttur og önnur ákvæði 177