
Myndsímtal hringt
Í myndsímtali (sérþjónusta) geta bæði þú og viðmælandi þinn séð rauntíma
hreyfimynd af hvor öðrum. Viðmælandi þinn sér þá hreyfimyndina sem myndavélin
þín tekur.
Til að geta hringt myndsímtal þarftu USIM-kort og að vera innan þjónustusvæðis
UMTS-símkerfis. Netþjónustuveitan þín gefur upplýsingar um framboð, verð og
áskrift að myndsímtölum.
Aðeins er hægt að koma á myndsímtali við einn aðila í einu. Hægt er að koma á
myndsímtali við samhæfan farsíma eða ISDN-tengd tæki. Ekki er hægt að koma á
myndsímtölum þegar annað símtal, myndsímtal eða gagnasímtal er virkt.
Tákn
Tækinu berst ekki hreyfimynd (annaðhvort sendir viðtakandinn ekki
hreyfimyndina eða símkerfið sendir hana ekki).
Þú hefur hafnað hreyfimyndsendingu úr tækinu þínu. Til að senda kyrrmynd
í staðinn skaltu velja
Valmynd
>
Stillingar
og
Hringistillingar
>
Símtöl
>
Mynd í myndsímtali
.
Jafnvel þótt þú hafnir hreyfimyndsendingu í myndsímtali verður tekið gjald
fyrir símtalið sem myndsímtal. Fáðu verðupplýsingar hjá þjónustuveitunni.
1 Á heimaskjánum velurðu eða
Sími
til að opna númeravalið og slærð inn
símanúmerið.
2 Veldu
Valkostir
>
Hringja
>
Myndsímtal
.
Hringt úr tækinu 45

Fremri myndavélin er sjálfgefið valin í myndsímtali. Það getur tekið smástund
að koma á myndsímtali. Ef ekki tekst að koma á tengingu (t.d. ef símkerfið
styður ekki myndsímtöl eða móttökutækið er ekki samhæft) er spurt hvort þú
viljir hringja venjulegt símtal eða senda textaskilaboð í staðinn.
Myndsímtal er í gangi þegar þú getur séð tvær hreyfimyndir og heyrt hljóð úr
hátalaranum. Viðmælandinn getur hafnað myndsendingu (sýnd með ) og þá
heyrir þú aðeins rödd hans og sérð að auki kyrrmynd eða gráan bakgrunn.
3 Lagt er á viðmælanda með því að ýta á hættatakkann.