
Samnýting hreyfimynda
Notaðu samnýtingu hreyfimynda (sérþjónusta) til að senda rauntíma hreyfimynd
eða myndskeið úr tækinu í samhæft farsímatæki meðan á símtali stendur.
Kveikt er á hátalaranum þegar kveikt er á samnýtingu hreyfimynda. Ef þú vilt ekki
nota hátalarann í símtölum á meðan hreyfimyndir eru samnýttar má einnig nota
samhæft höfuðtól.
Viðvörun:
Stöðug áraun af háum hljóðstyrk getur skaðað heyrn. Hlusta skal á tónlist á
hóflegum hljóðstyrk og ekki halda tækinu nærri eyranu þegar kveikt er á
hátölurunum.