Forsendur fyrir samnýtingu hreyfimynda
Samnýting hreyfimynda krefst 3G-tengingar. Ekki er hægt að nota samnýtingu
hreyfimynda nema með 3G-símkerfi. Nánari upplýsingar um þjónustuna, tiltæk 3G-
símkerfi og gjöld fyrir notkun þjónustunnar fást hjá þjónustuveitunni.
Til að hægt sé að nota samnýtingu hreyfimynda þarftu að gera eftirfarandi:
•
Gakktu úr skugga um að tækið þitt sé sett upp fyrir tengingar á milli
einstaklinga.
•
Þú hefur virka 3G-tengingu og sért innan þjónustusvæðis 3G-símkerfis. Ef þú
ferð út fyrir 3G-þjónustusvæði meðan samnýting fer fram, þá rofnar hún en
símtalið heldur áfram.
•
Bæði sendandinn og viðtakandinn eru skráðir á 3G-símkerfið. Ef þú býður
einhverjum í samnýtingu og tæki viðtakandans er ekki tengt við 3G-símkerfi,
eða þá að samnýting eða P2P hefur ekki verið sett upp í því, fær viðtakandinn
ekki boðið. Þú færð villuboð um að viðtakandinn geti ekki þegið boðið.