Samnýting hreyfimynda og myndskeiða
Meðan á símtali stendur skaltu velja
Valkostir
>
Samnýta hreyfimynd
.
1 Til að samnýta rauntímahreyfimynd í símtalinu skaltu velja
Í beinni
.
Til að samnýta myndskeið skaltu velja
Myndskeið
. Listi yfir hreyfimyndir sem
vistaðar eru í minni tækisins eða í gagnageymslunni opnast. Veldu myndskeiðið
sem þú vilt samnýta.
Hringt úr tækinu 49
Svo hægt sé að samnýta myndskeiðið gæti þurft að breyta því í annað snið. Ef
tækið tilkynnir um að það þurfi að umbreyta myndskeiðinu skaltu velja
Í lagi
.
Tækið þarf að hafa klippiforrit til að hægt sé að umbreyta.
2 Ef viðtakandinn er með nokkur SIP-vistföng eða símanúmer með landsnúmeri
vistuð í Tengiliðum, skaltu velja það vistfang eða númer sem þú vilt. Ef SIP-
vistfang eða símanúmer viðtakandans er ekki tiltækt skaltu slá inn vistfang
viðtakandans eða númerið ásamt landsnúmeri og velja síðan
Í lagi
til að senda
boðið. Tækið sendir boðið til SIP-vistfangsins.
Samnýting hefst sjálfkrafa þegar viðtakandinn samþykkir boðið.
Valkostir þegar myndskeið er samnýtt
gera hljóðnema virkan eða óvirkan
kveikja eða slökkva á hátalaranum
til að gera hlé á/hefja á ný samnýtingu hreyfimynda
til að skipta yfir í fulla skjástærð (stendur aðeins viðtakanda til
boða)
3 Veldu
Stöðva
til að ljúka samnýtingunni. Til að rjúfa símtal skal ýta á hætta-
takkann. Þegar símtali er slitið er samnýting mynda einnig rofin.
Til að vista samnýttu hreyfimyndina skaltu velja
Já
þegar beðið er um það. Tækið
lætur þig vita af staðsetningunni sem hreyfimyndin er vistuð á.
Ef önnur forrit eru notuð meðan á samnýtingu hreyfimyndar stendur er samnýtingin
sett í bið. Til að fara til baka á samnýtingarskjáinn og halda áfram samnýtingu
velurðu
Valkostir
>
Halda samnýtingu áfram
á heimaskjánum.