Stillingar samnýtingar
Til að koma á samnýtingu hreyfimynda þarf P2P- og 3G-tengistillingar.
48 Hringt úr tækinu
Tenging á milli einstaklinga (P2P) er einnig þekkt undir heitinu SIP-tenging (Session
Initiation Protocol). SIP-sniðstillingar verða að vera settar upp í tækinu til að hægt
sé að nota samnýtingu hreyfimynda. SIP-stillingarnar fást hjá þjónustuveitunni.
Nauðsynlegt er að vista þær í tækinu. Þjónustuveitan gæti sent þér stillingarnar eða
gefið þér upp nauðsynlegar stillingar.
Bæta SIP-vistfangi við tengilið
1 Veldu
Valmynd
>
Tengiliðir
.
2 Veldu tengiliðinn eða búðu til nýjan tengilið.
3 Veldu
Valkostir
>
Breyta
.
4 Veldu
Valkostir
>
Bæta við upplýsingum
>
Samnýta hreyfimynd
.
5 Sláðu inn SIP-vistfangið á forminu notandanafn@vistfang (hægt er að nota IP-
tölu í stað vistfangs).
Ef þú veist ekki SIP-vistfang viðkomandi geturðu notað símanúmer hans, ásamt
landsnúmerinu, til að samnýta hreyfimynd (ef netþjónustuveitan styður það).
Setja upp 3G tenginguna þína
Hafðu samband við þjónustuveituna þína til að fá samning um notkun 3G-símkerfis.
Gakktu úr skugga um að 3G-aðgangsstaðastillingar tækisins séu réttar. Nánari
upplýsingar um stillingarnar fást hjá þjónustuveitunni.