Um staðsetningaraðferðir
Maps sýnir hvar þú ert staddur á kortinu með GPS, A-GPS, þráðlausu staðarneti eða
staðsetningu byggðri á auðkenni endurvarpa.
GPS (Global Positioning System) er leiðsögukerfi sem byggir á móttöku
staðsetningarupplýsinga frá gervitunglum til að reikna út staðsetningu þína. A-GPS
(Assisted GPS) er sérþjónusta sem sendir þér GPS-gögn, sem eykur hraða og
nákvæmni staðsetningarinnar.
Staðsetning með þráðlausu staðarneti (WLAN) eykur nákvæmni staðsetningar
þegar GPS-merki nást ekki, sérstaklega ef þú ert innandyra eða milli hárra bygginga.
Með staðsetningu byggðri á auðkennum endurvarpa er staðan ákvörðuð gegnum
loftnetsturninn sem tækið er tengt við eins og er.
Nákvæmni staðsetningarinnar getur skeikað frá nokkrum metrum til nokkurra
kílómetra, eftir því hvaða staðsetningaraðferð er tiltæk.
Þegar þú notar Korta-forritið í fyrsta skipti er beðið um að þú tilgreinir
internetaðgangsstaðinn til að hlaða niður kortaupplýsingum, nota A-GPS eða
tengjast þráðlausu staðarneti.
GPS-kerfið (Global Positioning System) er rekið af Bandaríkjastjórn sem ber alla
ábyrgð á nákvæmni þess og viðhaldi. Nákvæmni staðsetningargagna kann að verða
fyrir áhrifum af breytingum á GPS-gervihnöttum sem gerðar eru af Bandaríkjastjórn
og kann að breytast í samræmi við stefnu varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna um
borgaralegt GPS og alríkisáætlun um þráðlausa leiðsögu. Slæm rúmfræði
gervihnatta getur einnig haft áhrif á nákvæmni. Staðsetning, byggingar,
náttúrulegar hindranir auk veðurskilyrða kunna að hafa áhrif á móttöku og gæði
GPS-merkja. Verið getur að GPS-merki náist ekki inni í byggingum eða
neðanjarðargöngum og þau geta orðið fyrir áhrifum frá efnum eins og steypu og
málmi.
108 Kort
Ekki ætti að nota GPS fyrir nákvæmar staðsetningarmælingar og aldrei ætti að
treysta eingöngu á staðsetningargögn frá GPS-móttakaranum og símkerfi fyrir
staðsetningu eða leiðsögn.
Áreiðanleiki áfangamælisins er ekki fullkominn og sléttunarvillur eru mögulegar.
Nákvæmnin veltur einnig á móttöku og gæðum GPS-merkja.
Til athugunar: Notkun þráðlauss staðarnets kann að vera takmörkuð í
einhverjum löndum. Í Frakklandi er aðeins heimilt að nota þráðlaust staðarnet
innandyra. Nánari upplýsingar fást hjá yfirvöldum á staðnum.