
Nokia Myndefnisþjónusta
Með Nokia Myndefnisþjónustunni (sérþjónusta) er hægt að hlaða niður og
straumspila myndskeið úr samhæfri hreyfimyndaþjónustu á netinu með því að nota
pakkagagnatengingu eða þráðlausa staðarnetstengingu. Einnig er hægt að flytja
myndskeið úr samhæfri tölvu í tækið og skoða þau í Video centre.
138 Nokia Myndefnisþjónusta

Það getur falið í sér stórar gagnasendingar um farsímakerfi þjónustuveitunnar að
nota aðgangsstaði fyrir pakkagögn til að hlaða niður hreyfimyndum. Upplýsingar
um gagnaflutningsgjöld fást hjá þjónustuveitum.
Tækinu getur fylgt fyrirfram valin þjónusta.
Þjónustuveitur bjóða ýmist upp á ókeypis efni eða taka gjald fyrir. Kannaðu verðið
hjá þjónustunni eða þjónustuveitunni.