
Myndskeið flutt úr tölvu
Færðu eigin myndskeið frá samhæfum tækjum yfir í Kvikmyndabankann með
samhæfri USB-snúru. Kvikmyndabankinn mun einungis birta myndskeið sem eru á
sniði sem tækið styður.
1 Til að sjá tækið í tölvu sem gagnageymslu, sem hægt er að flytja allar gagnaskrár
í, skaltu koma á tengingu með USB-gagnasnúru.
2 Veldu
Gagnaflutningur
sem gerð tengingar.
3 Veldu myndskeiðin sem þú vilt afrita af tölvunni.
4 Flytja myndskeið í E:\My Videos í gagnageymslu tækisins.
Myndskeiðin sem búið er að færa birtast í möppunni Myndskeiðin mín í
Kvikmyndabankanum. Myndefnisskrár í öðrum möppum tækisins sjást ekki.