Myndskeiðin mín
„Myndskeiðin mín“ er geymslusvæði fyrir öll myndskeið. Hægt er að flokka
myndskeið sem hefur verið hlaðið niður og myndskeið sem tekin hafa verið með
myndavél tækisins, í sérstökum skjágluggum.
Til að opna möppu og skila myndskeið velurðu möppuna. Hægt er að stjórna
spilaranum með því að smella á stýritakkana á skjánum meðan myndskeið er spilað.
Hljóðstyrknum er breytt með því að ýta á hljóðstyrkstakkann.
Veldu
Valkostir
og svo úr eftirfarandi:
Halda niðurhali áfram — Halda niðurhali áfram sem hlé hefur verið gert á eða
sem hefur mistekist.
Hætta við niðurhal — Hætta við niðurhal.
Nokia Myndefnisþjónusta 141
Um hreyfimynd — Skoða upplýsingar um myndskeið.
Leita — Leita að myndskeiði. Sláðu inn leitarorð (allt heiti skráarinnar eða hluta af
því).
Minnisstaða — Til að sjá hversu mikið minni er laust og hversu mikið er í notkun.
Raða eftir — Raða myndskeiðum. Veldu viðeigandi flokk.
Færa og afrita — Færa eða afrita myndskeið. Veldu
Afrita
eða
Færa
og
staðsetningu.