Nokia Messaging
Nokia Messaging þjónustan sendir sjálfkrafa tölvupóst úr netfangi þínu í tækið.
Hægt er að lesa, svara og skipuleggja tölvupóstinn á ferðinni. Nokia Messaging
þjónustuna má nota með mörgum algengum tölvupóstveitum á netinu.
Mögulega er tekið gjald fyrir Nokia Messaging. Hafðu samband við þjónustuveituna
eða Nokia Messaging til að fá upplýsingar um hugsanlegan kostnað.
Símkerfið verður að styðja Nokia Messaging og er hugsanlega ekki aðgengileg á
öllum svæðum.
Nokia Messaging er eins og er aðeins boðið í prufuútgáfu.
Uppsetning á Nokia Messaging forritið
1 Veldu
Valmynd
>
Forrit
>
Still.hjálp
.
2 Þegar þú opnar stillingarhjálpina í fyrsta skipti þarftu að tilgreina
tölvupóststillingar á eftir stillingum símafyrirtækisins. Ef þú hefur notað
stillingarhjálpina áður velurðu
Póstuppsetning
.
3 Lestu upplýsingarnar á skjánum í póstuppsetningunni og veldu
Ræsa
.
4 Samþykktu að setja upp Nokia Messaging forritið.
5 Sláðu inn upplýsingar um tölvupóstáskriftina.
Nokia Messaging forritið er sett upp í
Valmynd
>
Forrit
.
Frekari upplýsingar eru á www.email.nokia.com.