
A-GPS (Assisted GPS)
Tækið styður einnig GPS með leiðsögn (A-GPS).
A-GPS er sérþjónusta.
Staðsetning (GPS) 99

Assisted GPS (A-GPS) er notað til að fá hjálpargögn með pakkagagnatengingu og
hjálpar við að reikna út hnit staðsetningar þinnar þegar tækið tekur við merkjum
frá gervitunglum.
Þegar þú kveikir á A-GPS tekur tækið á móti gervihnattaupplýsingar frá
hjálpargagnamiðlara um farsímakerfið. Tækið getur verið fljótara að ná GPS-
staðsetningu ef hjálpargögn eru notuð.
Tækið er forstillt þannig að það noti Nokia A-GPS þjónustuna, ef engar sérstakar A-
GPS stillingar frá þjónustuveitunni eru í boði. Hjálpargögnin eru aðeins sótt frá
Nokia A-GPS þjónustumiðlaranum þegar þörf krefur.
Það verður að vera internetaðgangsstaður í tækinu til að hægt sé að sækja
hjálpargögn frá Nokia A-GPS þjónustunni um pakkagagnatengingu. Til að tilgreina
aðgangsstað fyrir A-GPS velurðu
Valmynd
>
Forrit
>
Staðsetning
og
Staðarákvörðun
>
Miðlari fyrir staðarákv.
>
Aðgangsstaður
. Aðgangsstaður
fyrir þráðlaust staðarnet nýtist ekki í þessari þjónustu.Aðeins er hægt að nota
internetaðgangsstað fyrir pakkagögn. Tækið biður um internetaðgangsstað þegar
GPS er notað í fyrsta skipti.