
Flýtivísar
Skipt er á milli opinna forrita með því að halda valmyndartakkanum inni.
32 Tækið þitt

Keyrsla forrita í bakgrunni krefst aukinnar rafhlöðuorku og minnkar líftíma
rafhlöðunnar.
Til að koma á nettengingu (sérþjónusta) heldurðu 0 inni í númeravalinu.
Til að opna forrit sem tiltæk eru á miðlunarstikunni, svo sem tónlistarspilar og
netvafri, ýtirðu á miðlunartakkann á hvaða skjámynd sem er.
Skipt er um snið með því að ýta á rofann og velja nýtt snið.
Til að hringja í talhólfið (sérþjónusta) heldurðu 1 inni í númeravalinu.
Ýttu á hringitakkann á heimaskjánum til að opna lista yfir númer sem hringt hefur
verið í nýlega.
Haltu hringitakkanum inni á heimaskjánum til að nota raddskipanir.