Aðgerðir á snertiskjá
Smella og tvísmella
Til að opna forrit eða annað atriði á snertiskjánum er venjulega pikkað á það með
fingrinum. En til að opna eftirfarandi atriði þarftu að tvísmella á þau.
Tækið tekið í notkun 19
•
Atriði á lista í forriti, svo sem Drög í möppulistanum í Skilaboðum.
Ábending: Þegar listaskjár er opnaður er fyrsta atriðið auðkennt. Til að opna
auðkennda atriðið smellirðu einu sinni á það.
•
Forrit og möppur á valmyndinni þegar listaskjár er notaður
•
Skrá á skráarlista, til dæmis mynd á mynda og hreyfimyndaskjá í Galleríinu.
Ef smellt er á skrá eða svipað atriði einu sinni opnast það ekki, en verður
auðkennt. Til að sjá tiltæka valkosti fyrir hlutinn skaltu velja
Valkostir
eða velja
tákn af tækjastiku, ef það er í boði.
Velja
Í þessum notendaleiðbeiningum er opnun forrita eða atriða með því að smella á
þau einu sinni eða tvisvar kallað að "velja". Ef þú þarft að velja nokkur atriði í röð
er skjátextinn sem valinn er aðgreindur með örvum.
Dæmi: Til að velja
Valkostir
>
Hjálp
smellirðu á
Valkostir
og síðan
Hjálp
.
Draga
Til að draga seturðu fingurinn á skjáinn og rennir honum yfir skjáinn.
Dæmi: Til að fletta upp eða niður á vefsíðu dregurðu síðuna með fingrinum.
20 Tækið tekið í notkun
Sveifla
Til að sveifla rennirðu fingrinum hratt til vinstri eða hægri á skjánum.
Dæmi: Þegar mynd er skoðuð sveiflarðu henni til vinstri eða hægri til að sjá næstu
mynd eða fyrri mynd, eftir því sem við á.
Ábending: Þú getur einnig strokið yfir læstan skjá til að svara símtali, stöðva
áminningartón dagbókar eða vekjara. Farðu eftir sjónrænu vísbendingunum.
Fletta
Til að fletta upp eða niður á lista sem er með flettistiku dregurðu rennibraut
flettistikunnar.
Flettu til að vafra um listann. Því hraðar sem þú flettir því hraðar hreyfist listinn. Ef
flett er upp fylgir listinn hreyfingunni og hreyfist niður.
Pikkaðu á atriði til að velja það og stöðva lista sem er á hreyfingu.
Ábending: Til að skoða stutta lýsingu á tákni seturðu fingurinn á táknið. Ekki eru
til lýsingar á öllum táknum.
Ljós á snertiskjá
Ef skjárinn er ekki notaðu í tiltekinn tíma slokknar á ljósi hans.
Tækið tekið í notkun 21
Til að kveikja á skjáljósinu smellirðu á það.
Ef snertiskjárinn og takkarnir eru læstir kviknar ekki á ljósinu þótt smellt sé á skjáinn.
Til að taka skjáinn og takkana úr lás skaltu renna lásnum til.