
SIM-korti og rafhlöðu komið fyrir
SIM-korti komið fyrir
Mikilvægt: Til að koma í veg fyrir skemmdir á SIM-kortinu skal alltaf fjarlægja
rafhlöðuna áður en þú setur kortið í eða fjarlægir það.
Mikilvægt: Ekki skal nota mini-UICC SIM-kort, einnig þekkt sem micro-SIM-
kort, micro-SIM-kort með millistykki eða SIM-kort með mini-UICC straumloka (sjá
mynd) í þessu tæki. Micro SIM-kort er minna en venjulegt SIM-kort. Þetta tæki styður
ekki notkun micro SIM-korta og ef ósamhæf SIM-kort eru notuð getur það valdið
skemmdum á minniskortinu eða tækinu sjálfu og gögn sem geymd eru á kortinu
geta skemmst.
1 Fjarlægðu bakhliðina.
2 Taktu rafhlöðuna úr, ef hún er í.
Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður en rafhlaðan er
fjarlægð.
12 Tækið tekið í notkun

3 Opnaðu SIM-kortsraufina.
4 Settu SIM-kort í raufina. Snertiflötur kortsins þarf að snúa upp og skáhornið þarf
að vísa í áttina að tækinu. Ýttu kortinu inn.
5 Lokaðu SIM-kortsraufinni. Gættu þess að vel sé lokað.
Ef SIM-kortið er ekki á sínum stað er aðeins hægt að nota tækið í ótengdu sniði.
Tækið tekið í notkun 13

Rafhlaðan sett í
1 Komdu rafhlöðunni fyrir.
2 Til að skipta um hliðina skaltu beina efri festingunum að raufum þeirra. Ýttu
miðju hliðarinnar niður svo festingarnar læsist á sínum stað. Þegar læsingarnar
í miðjunni eru á sínum stað skaltu ýta hliðinni niður neðst á tækinu.
Sjá „SIM-kort fjarlægt“, bls. 37.