Nokia X6 00 - Um þráðlaus staðarnet

background image

Um þráðlaus staðarnet

Tækið getur fundið og tengst þráðlausum staðarnetum. Á þráðlausu staðarneti er

hægt að tengjast við internetið og önnur samhæf tæki sem styðja þráðlaust

staðarnet.
Til að geta notað þráðlaust staðarnet þarf eftirfarandi:

120 Tengingar

background image

Þráðlaust staðarnet verður að vera tiltækt á staðnum.

Tækið verður að vera tengt þráðlausa staðarnetinu. Sum þráðlaus staðarnet eru

varin og það þarf að fá aðgangsorð hjá þjónustuveitunni til að geta tengst þeim.

Internetaðgangsstaður þarf að vera gerður fyrir þráðlaust staðarnet. Notaðu

aðgangsstaðinn fyrir aðgerðir sem krefjast tengingar við internetið.

Þráðlausri staðarnetstengingu er komið á þegar þú býrð til gagnatengingu með því

að nota netaðgangsstað. Þráðlausa staðarnetstengin er rofin þegar þú lokar

gagnatengingunni.
Hægt er að nota þráðlaust staðarnet meðan á símtali stendur eða

pakkagagnatenging er virk. Aðeins er hægt að tengjast við einn aðgangsstað fyrir

þráðlaust staðarnet í einu, en nokkur forrit geta hins vegar notað sama

internetaðgangsstaðinn.
Aðgerðir sem nota þráðlaust staðarnet eða leyfa slíkum aðgerðum að keyra í

bakgrunni meðan aðrar aðgerðir eru notaðar krefjast aukinnar rafhlöðuorku og

minnka endingartíma rafhlöðunnar.
Tækið þitt styður eftirtaldar í þráðlausu staðarneti:

IEEE 802.11b/g staðalinn

2,4 GHz virkni

WEP, WPA/WPA2 og 802.1x sannvottunaraðferðir. Aðeins er hægt að nota þessa

valkosti ef símkerfið styður þá.

Mikilvægt: Alltaf skal virkja eina af tiltækum dulkóðunaraðferðum til að auka

öryggi þráðlausrar staðarnetstengingar. Notkun dulkóðunar dregur úr hættunni á

því að einhver fái aðgang að gögnunum þínum án heimildar.
Hægt er að nota þráðlausa staðarnetstengingu þrátt fyrir að tækið sé í ótengdu

sniði, ef það er í boði. Mundu að fara að öllum viðeigandi öryggisreglum þegar þú

kemur á og notar þráðlausa staðarnetstengingu.

Tengingar 121

background image

Ábending: Til að sjá MAC-vistfangið sem auðkennir tækið þitt skaltu opna

númeravalið og slá inn *#62209526#.

Til athugunar: Notkun þráðlauss staðarnets kann að vera takmörkuð í

einhverjum löndum. Í Frakklandi er aðeins heimilt að nota þráðlaust staðarnet

innandyra. Nánari upplýsingar fást hjá yfirvöldum á staðnum.