
Aðgangsst. pakkagagna
Veldu
Valmynd
>
Stillingar
og
Tengingar
>
Nettengileiðir
>
Aðgangsstaður
og fylgdu leiðbeiningunum.
Aðgangsstað fyrir pakkagögn breytt
Veldu aðgangsstaðahóp og aðgangsstað sem merktur er með
. Fylgdu
leiðbeiningum þjónustuveitunnar.
Tengingar 125

Veldu úr eftirfarandi:
Nafn aðgangsstaðar — Þjónustuveitan leggur fram nafn aðgangsstaðarins.
Notandanafn — Notandanafn getur verið nauðsynlegt til að koma á
gagnatengingu og það fæst yfirleitt hjá þjónustuveitunni.
Biðja um lykilorð — Ef þú þarft að slá inn lykilorðið í hvert skipti sem þú tengist
við miðlara eða ef þú vilt ekki vista lykilorðið í tækinu skaltu velja
Já
.
Lykilorð — Það getur verið nauðsynlegt að nota lykilorð til að koma á
gagnatengingu og það fæst yfirleitt hjá þjónustuveitunni.
Sannvottun — Til að senda aðgangsorðið alltaf dulkóðað skaltu velja
Örugg
. Til
að senda lykilorðið dulkóðað þegar það er hægt skaltu velja
Venjuleg
.
Heimasíða — Sláðu inn veffangið eða númer skilaboðamiðstöðvar
margmiðlunarskilaboða, eftir því hvaða aðgangsstað þú vilt setja upp.
Nota aðgangsstað — Stilltu tækið þannig að það komi á tengingu með þessum
aðgangsstað, annaðhvort sjálfvirkt eða eftir staðfestingu.
Breyta frekari aðgangsst. pakkagagna
Veldu
Valkostir
>
Frekari stillingar
.
Veldu úr eftirfarandi:
Gerð símkerfis — Veldu hvaða internetsamskiptareglur á að nota þegar gögn eru
flutt úr eða í tækið. Aðrar stillingar velta á því hvaða gerð af símkerfi þú velur.
IP-tala símans (aðeins fyrir IPv4) — Sláðu inn IP-tölu tækisins þíns.
Nafnaþjónustur — Sláðu inn IP-tölu aðal- og aukanafnamiðlara ef þjónustuveitan
biður um það. Hafðu samband við internetþjónustuveituna til að fá þessar tölur.
Slóð staðgengilsmiðlara — Sláðu inn veffang proxy-miðlarans.
Númer staðgengilsgáttar — Slá inn gáttartölu proxy-miðlarans.