Nokia X6 00 - Um Bluetooth-tengingar

background image

Um Bluetooth-tengingar

Með Bluetooth-tækni er hægt að koma á þráðlausri tengingu við önnur samhæf

tæki, svo sem farsíma, tölvur, höfuðtól og bílbúnað.
Þú getur notað tenginguna til að senda hluti frá tækinu þínu, flytja skrár frá

samhæfri pc-tölvu, og prenta skrárnar með samhæfðum prentara.

Veldu og

Valmynd

>

StillingarTengingar

>

Bluetooth

.

Þar sem tæki með Bluetooth-tækni nota útvarpsbylgjur til samskipta þurfa tækin

ekki að vera í beinni sjónlínu hvert við annað. Hin vegar þurfa þau að vera í innan

við 10 metra (33 feta) fjarlægð hvort frá öðru. Truflanir geta þó orðið á tengingunni

vegna hindrana eins og veggja eða annarra raftækja.
Þetta tæki er samhæft við Bluetooth Specification 2.0 + EDR sem styður eftirfarandi

snið: almennur aðgangur, netaðgangur, stýring, handfrjálst, höfuðtól,

hlutasendingar, skráaflutningur, upphringisamband, SIM-aðgangur og raðtengi. Til

að tryggja samvirkni milli annarra tækja sem styðja Bluetooth-tækni skal nota

aukabúnað sem eru viðurkenndir af Nokia fyrir þessa tegund. Leita skal upplýsinga

hjá framleiðendum annarra tækja um samhæfi þeirra við þetta tæki.
Þegar tækið er læst er aðeins hægt að tengja það við leyfð tæki.
Þau forrit sem notast við Bluetooth ganga á rafhlöðu símans og draga úr endingu

hennar.