
Sýndarlyklaborð
Þú getur notað sýndarlyklaborðið á skjánum í víðmynd.
Sýndarlyklaborðið er gert virkt með því að velja
>
QWERTY á öllum
skjánum
. Stillingin er ekki tiltæk ef sjálfvirkur innsláttur er virkur (skynjarar virkir).
1 Loka - Loka sýndarlyklaborðinu.
2 Innsláttarvalmynd - Opna valmynd með valkostum fyrir snertiinnslátt og
skipanir eins og
Tungumál texta
.
3 Sýndarlyklaborð
4 Shift og hástafalás - Til að slá inn hástaf þegar skrifað er með lágstöfum, eða
öfugt, skaltu velja takkann áður en stafurinn er sleginn inn. Til að stilla á
hástafalás skaltu velja takkann tvisvar. Strik undir takkanum sýnir að hástafalás
sé virkur.
5 Stafir
6 Tölustafir og sérstafir
54 Textaritun

7 Kommur yfir stöfum
8 Bilslá
9 Færa bendilinn eftir innslátt.
10 Bakktakki
11 Færslutakki – Til að færa bendilinn yfir í næstu línu eða innsláttarreit.
Viðbótaraðgerðir fara eftir því hvað er verið að gera.
12 Innsláttaraðferð - Velja innsláttaraðferð. Þegar smellt er á aðferð lokast
innsláttarskjárinn sem var upp og sá sem valinn var opnast. Tiltækar
innsláttaraðferðir eru breytilegar eftir því hvort sjálfvirkur innsláttur er virkur
eða ekki.