Endurvinnsla
Að loknum endingartíma símans má endurnýta allan efnivið hans sem efni og orku.
Til að tryggja að rétt sé staðið að losun og endurvinnslu tekur Nokia, ásamt
samstarfsaðilum sínum, þátt í áætlun sem nefnist We:recycle. Til að fá upplýsingar
um endurvinnslu á gömlum Nokia-vörum og hvar finna má losunarstaði skal fara á
www.nokia.com/werecycle eða hringja í þjónustuver Nokia.
Endurvinna skal pakkningar og notandahandbækur á næstu endurvinnslustöð.
Merkið sem sýnir yfirstrikaða ruslafötu og er á vörunni, rafhlöðunni, bæklingnum
eða umbúðunum táknar að fara verður með allan rafbúnað og rafeindabúnað,
rafhlöður og rafgeyma á sérstaka staði til förgunar að líftíma vörunnar liðnum. Þessi
krafa á við innan Evrópusambandsins. Hendið þessum vörum ekki með
heimilisúrgangi. Frekari upplýsingar um umhverfiseiginleika símans er að finna á
www.nokia.com/ecoprofile.
170 Umhverfisvernd