Nokia X6 00 - Meðferð tækisins

background image

Meðferð tækisins
Fara skal gætilega með tækið, rafhlöðuna, hleðslutækið og allan aukabúnað. Eftirfarandi leiðbeiningar hjálpa til við að

halda tækinu í ábyrgð.

Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki og hvers kyns vökvar geta innihaldið steinefni sem tæra rafrásirnar. Ef tækið

blotnar skal fjarlægja rafhlöðuna og leyfa því að þorna.

Hvorki skal nota tækið á rykugum eða óhreinum stöðum né geyma það þar. Hreyfanlegir hlutir og rafrænir hlutar

þess geta skemmst.

Ekki skal geyma tækið á heitum stað. Hátt hitastig getur dregið úr endingu tækisins, skemmt rafhlöðuna og undið

eða brætt plastefni.

Ekki skal geyma tækið á köldum stað. Þegar tækið hitnar upp að eðlilegu hitastigi getur raki myndast innan í því

og hann getur skemmt rafrásir.

Ekki skal reyna að opna tækið öðruvísi en tilgreint er í notendahandbókinni.

Óleyfilegar breytingar geta skemmt tækið og kunna að brjóta í bága við ákvæði laga um senditæki.

Tækinu skal ekki henda, ekki skal banka í það eða hrista það. Óvarleg meðferð getur skemmt innri rafrásaspjöld og

búnað.

Aðeins skal nota mjúkan, hreinan og þurran klút til að hreinsa yfirborð tækisins.

Ekki skal mála tækið. Málning getur fest hreyfanlega hluti og komið í veg fyrir að þeir vinni rétt.

Af og til skal slökkva skal á tækinu og fjarlægja rafhlöðuna til að það virki sem best.

172 Vöru- og öryggisupplýsingar

background image

Haltu tækinu frá seglum eða segulsviðum.

Til að tryggja öryggi mikilvægra gagna skal vista þau á minnst tveimur stöðum, svo sem í tækinu, á minniskorti

eða tölvu, eða skrifa niður mikilvægar upplýsingar.

Við lengri aðgerðir getur tækið hitnað. Það er í flestum tilvikum eðlilegt. Ef grunur leikur á að tæki vinni ekki rétt skal

fara með það til næsta viðurkennda þjónustuaðila.